FRÉTTIR AF FJÖLSKYLDUNNI
Jæja, allir vinir og kunningjar á ‚Íslandi. Ég er að myndast við það að koma síðunni aftur í gagnið. Ástæðan fyrir endurksipulagningunni á henni eru margar en fysrt og fremst jákvæðar. Það hefur nefnilega gengið mjög vel síðastliðin ár og allt vaxið á öllum sviðum hjá okkur og maður verður nú bara að vera jákvæður í sambandi við það á þessum kreppu tímum.
FLUTNINGUR
Við Anna og krakkarnir fluttum í fyrrasumar eða nánar tiltekið till Växjö í Svíþjóð. Ástæðan var einföld, við vildum búa í frjálsíþróttabæ, sem Växjö er. Hér líður okkur mjög vel.
ANNA
Anna hætti að vinna sem sjúkraþjálfari 2007 og aðstoðaði mig við fyrirtækið mitt í eitt ár áður en við fluttum. Hún fékk síðan 25% vinnu hér sem þjálfari við Frjálsíþróttamenntaskólann og svo 50% vinnu við háskólann þar sem hún vinnur sem kennari við íþróttadeildina. Anna er í sjöunda himni með þetta.
KRAKKARNIR
Örn er orðinn 10 ára, Olga 7 ára og Albert litli 5 ára. Ég læt fylgja mynd af þeim með þessum pistli svo að fólk átti sig á hvernig þau líta út í dag. Allt gengur vel með krakkana, Örn er í fimleikum, fótbolta og frjálsum og spilar líka á saxófón. Olga er í fimleikum og spilar á píanó. Albert er á leikskóla og finnur sig vel í nýju umhverfi.
HÚS
Við keyptum okkur þetta fína hús hér í bænum og fengum auðvitað miklu meira fyrir peningana hér en í Helsingborg þannig að það var bara fínt, keyptum okkur líka auka lóð til þess að hafa meira pláss. Við erum alsæl í nýja húsinu, enda svo til nýtt, byggt 2006-2007.
ÉG
Hvað er ég þá að gera hér. Jú, ég færði mig bara um set og vinn áfram sem þjálfari með fyrirtækið mitt Global Throwing eins og þið sjáið glögglega á síðunni. Ég er þá með 9 einstaklinga frá 5 löndum og gengur bara mjög vel. Ég leigi mig inn í aðstöðuna hér í Växjö en vinn að öðru leiti sjálfstætt en hef verið ótrúlega vel tekið hér af öllum.
SAMBAND
Allir sem vilja vera í sambandi við okkur geta fylgst með síðunni sem er á ensku en að öðru leiti mun ég skrifa hér á Íslensku um allt milli himins og jarðar.
Heimilisfangið er:
Tjädervägen 13D
352 42 Växjö
Sverige
Heimasími: +46 470 470 50
GSM Vésteinn: +46 709 147 158
GSM Anna: +46 734 216 246
Bestu kveðjur
Véddi
Add commentary (0)