Gaman á Landsmóti UMFÍ á Akureyri
Ég tók mig til um daginn og flaug í boði Landsmótsnefndar UMFÍ beint til Akureyrar frá Kaupmannahöfn og tók krakkana mína með mér. Við bjuggum í góðu yfirlæti sem ávallt hjá Aðalbjörgu systir og hennar manni Óla og dóttur þeirra Þóru.
Ég hélt síðan fyrirlestur um afreksíþróttir og Gerd Kanter á líkamsræktarstöðinni Bjargi sem er í eigu þeirra hjóna á fimmtudagskvöldinu í byrjun Landsmóts. Fullt var út úr dyrum og á milli 200-250manns mættu sem yljaði mér um hjartaræturnar.
Síðan vorum við krakkarnir bara í fríi og nutum þess í botn í góða veðrinu á Akureyri. Við fórum í sundlaugina á hverjum degi, krakkarnir léku sér mikið við Thelmu Maríu og Aron Inga sem er börn Unnar Sig. Og Hreiðars. Síðan var farið í Kirkjutröppuhlaup og skemmtiskokk þar sem Örn vann öllum að óvörum.
Við vorum með afa, hittum Þráinn, Dísu og stelpurnar og marga aðra góða vini. Þessi ferð var alger draumur.
Hér koma nokkrar myndir frá fyrirlestrinum.
Add commentary (1)