Það var ótrúlegt
að hitta Ingibjörgu Ívarsdóttur og Birgittu Guðjónsdóttur á HM í Berlín.
Birgittu rekst að vísu á inn á milli á Akureyri en í sjálfu sér ekki mjög oft.
En það eru liðin ansi mörg ár síðan ég sá Ingibjörgu. 
Ingibjörg býr í
Berlín og hefur gert í mörg ár. Birgitta kom í heimsókn í nokkra daga og horfði
á HM með henni.
Það eru liðin ansi mörg ár síðan ég þjálfaði þessar dömur sællar minningar 1985 og báðar snar bættu sig, Birgitta í sjöþraut og Ingibjörg í langstökki. Þær æfðu grimmt á þessum árum ásamt nokkrum fleirum ungum og efnilegum eins og Auðunni Guðjónssyni og bræðrunum Jóni Birgi og Ólafi Guðmundssyni.
En hér kemur mynd af þeim stöllum, þær hafa bara ekkert breyst.
|
|
| Raka Spåret, Stockholm | 05.02.2012 |
| Sparta Indoor, Copenhagen | 08.02.2012 |
| National Meet Finland, Sweden, Norway | 11.02.2012 |
| Danish Nationals in Skive DEN | 25.02.2012 |
| Training camp in Växjo | 05.02.2012 |
| Training camp in Växjö | 01.03.2012 |
| Training camp in Alfas Del Pi | 01.04.2012 |
| Training camp in San Diego | 17.04.2012 |