Þegar ég fór um daginn til S-Afríku í þrjár vikur í æfingabúðir að þá kom Ragnheiður systir og hjálpaði Önnu með krakkana á meðan.
Þetta var ótrúlegur tími fyrir krakkana og Önnu. Íslenskan í fyrirrúmi og mikið lesið, sungið og föndrað með Ragnheiði. Hún hefur líka einstakt lag á krökkum og þau njóta sín í návist hennar.
Þar sem Anna hefur verið frá vinnu sökum of mikils álags í yfir þrjá mánuði að þá getum við sagt sem svo að Ragnheiður bjargaði okkur með því að koma henni til hjálpar. Ef svo hefði ekki orðið hefði ég ekki getað farið til S-Afríku.
Allt fór þetta því vel að lokum og allir ánægðir að lokum þegar Ragnheiður fór heim. Við gátum meira að segja haldið upp á afmælið hjá Albert sem var frestað þar til ég kom heim aftur en hann varð 6 ára þann 13 Jan s.l.