Örn keppti um helgina á DM sem er svæðamótið hér í Smálöndunum fyrir krakka. Mótið fór fram í Växjö og gekk Erni vel.
Hann vann stangarstökk með 2.20m, varð annar í þrístökki með persónulget met 9.51m, annar í kúluvarpi nálægt sínu besta 9.68m, annar í hástökki einnig nálægt sínu best með 1.43m og bætti svo í grindinni með hlaupi upp á 11.30 sek og varð í fimmta sæti.