vesteinn.png

Albert 8 ára

Cover.JPGTíminn líður, þann 13. janúar eða í gær var litli Albert 8 ára. Við héldum smá afmælisveislu bara heima fjölskyldan og fórum svo til Perstorp og heilsuðum upp á ömmu og afa þar en Birgitta amma átti svo afmæli í dag. Þannig að þeim tókst að halda upp á þetta saman.


Gleđileg Jól (0)

!cid_AC3B1B65B74B40D08412D2E3E9627783@VesteinnPC.jpgGleðileg Jól og farsælt komandi ár til allra heima á Íslandi frá Védda, Önnu, Erni, Olgu og Albert. 


Örn 13 ára í Bandaríkjunum (0)

Cover.JPGVið feðgarnir erum búnir að vera í viku í Bandaríkjunum hjá Arrhenius fjölskyldunni en ég þjálfa bæði Niklas og Leif Arrhenius.


Olga 10 ára (0)

Cover.JPG25. október s.l. varð Olga okkar 10 ára og bauð hún að venju öllum í bekknum sínum heim í veislu. Mikið var um dýrðir og allir hressir og kátir ekki síst Olga sjálf.


Grand Slam fyrir Örn og Theo (0)

cover.JPGÞað kallast Grand Slam þegar maður vinnur öll fjögur stærstu Tennis mótin fyrir fullorðna. Ef við færum þetta yfir á frjálsar þá getum við sagt að þeir Örn og Theo Ahlström náðu svipuðum árangri hér í Växjö í  sumar. 


Pabbi og Inga í heimsókn

Cover.JPGPabbi og Inga komu í heimsókn um daginn og voru í nokkra daga og var virkilega gaman að hafa þau hjá okkur. Við fórum í sumarhúsið og sýndum þeim allt í Växjö og svo grilluð við með þeim og Unni og fjölskyldu sem eru nýflutt út.


Ađalbjörg og fjölskylda í heimsókn (1)

Cover.JPGAðalbjörg systir, Óli og Þóra komu í heimsókn í lok júlí í fyrsta skipti síðan við fluttum til Växjö. Voru þau í góðu yfirlæti hjá okkur eða með okkur í rúma viku þar sem síðustu dögunum eyddu þau í Stokkhólmi og fóru m.a. á Diamond League mótið þar og sáu sjálfan Usain Bolt hlaupa 200m.


Góđir gestir frá HSK (10)

Cover.JPGÞrír strákar af HSK svæðinu komu í heimsókn til okkar og voru í þrjá daga við æfingar í júlí mánuði s.l. Haraldur Einarsson frá Vöku og Selfysingarnir Guðmundur Kr. Jónsson og Dagur Fannar Magnússon.


Örn stórbćtir sig og setur met

orn.jpgÖrn keppti um helgina á Svæðameistaramótinu hér í Smálöndum í sínum aldursflokki 13 ára stráka.


Fjölskyldan á Spáni (0)

Cover.JPGLoksins, loksins komust Anna og krakkarnir með í æfingabúðir. Ég var búinn að bíða lengi eftir því að þau kæmust með og við gætum eytt góðum stundum saman þrátt fyrir að ég væri að vinna á milli við þjálfun.


Krakkarnir kasta á Spáni (0)

Cover.JPGAnna og krakkarnir komu með um daginn í æfingabúðir til Spánar. Hér koma myndir frá æfingu hjá Olgu og Albert og svo frá nýja persónulega metinu hjá Erni 42.50m með 600gr kringlu. En hann keppti í ferðinni og átti meira að segja 45m kast naumlega ógilt.


Örn keppti í fimm greinum (0)

cover.JPGÖrn keppti um helgina á DM sem er svæðamótið hér í Smálöndunum fyrir krakka. Mótið fór fram í Växjö og gekk Erni vel.

Hann vann stangarstökk með 2.20m, varð annar í þrístökki með persónulget met 9.51m, annar í kúluvarpi nálægt sínu besta 9.68m, annar í hástökki einnig nálægt sínu best með 1.43m og bætti svo í grindinni með hlaupi upp á 11.30 sek og varð í fimmta sæti.


Albert og Davíđ halda upp á afmćlin sín (0)

cover.JPGAlbert og Davíð vinur hans héldu sameiginlega afmælisveislu þegar þeir fögnuðu 7 ára afmælum sínum þann 15 janúar s.l. Mikið var um dýrðir og þeir félagar í essinu sínu. Hér koma nokkrar myndir.


Olga á fullu í fimleikunum (0)

004.JPGOlga æfir fimleika tvisvar í viku og keppir oft á mótum með vinkonum sínum. Eins og ég
hef getið um áður er hún svo í fótbolta, kór og píanónámi.


Auđvitađ átti Örn afmćli í nóvember (0)

cover.JPGOlga átti afmæli 25 október og ég skrifaði um það hér að neðan en Örn gleymdist og hann er í sjálfu sér ekki enn búinn að halda upp á afmælið sitt, hann líkist pabba sínum að því leytinu að hann hefur bara ekki haft tíma til þess, ha,ha.


Örn verđlaunađur af IFK Växjö (0)

cover.JPGÁ aðalfundi félagsins hér um daginn var Örn verðlaunaður fyrir nokkur félagsmet sem han setti árið 2009 og 2010. Það var aðallega í kringlukasti og boðhlaupum en hér er hann ásamt nokkrum æfingafélögum að taka á móti verðlaununum úr hendi gjaldkera frjálsíþróttadeildarinnar Janne Sandberg. Örn fór heim með fjórar viðurkenningar og alsæll að sjálfsögðu.


Lúđrasveitin spilar jólalög (0)

Cover.JPGÖrn er búinn að spila í lúðrasveit tónlistarskólans hér í rúmlega ár eða svo. Um daginn spiluðu þau jólalög í andyri stórmarkaðs í um klukkutíma.


Örn međ ţrjár bćtingar í Gautaborg (0)

098.JPGÖrn keppti í Julklappsjakten í Gautaborg um helgina og bætti sig vel. Fyrst bætti han sig í kúluvarpi með því að varpa kúlunni 9.76m (3kg). Hann varð annar í þeirri grein og keppti í fyrst skipti með snúning.


Olga byrjuđ í fótbolta (0)

Cover.JPGOlga var búin að fara á 2-3 æfingar þegar hún tók í sínu fyrsta fótboltamóti á ævinni núna um helgina.


Olga 9 ára (0)

olga.JPGOlga var 9 ára í dag og bauð öllum úr bekknum í afmælisveislu. Tveir voru veikir af strákunum en samanlagt komu 15 krakkar og svo Örn og Albert og besti vinur Alberts sem heitir Oskar. Veislan tókst mjög vel og Olga fékk fullt af fínum gjöfum og var alsæl með daginn.


Örn setur met (3)

027.JPGÖrn setti félagsmet hjá félaginu hér í Växjö um daginn auk þess að setja Smálandamet í kringlukasti fyrir 12 ára stráka með 600gr kringlu.


Albert byrjar í skóla (0)

002.JPGAlbert byrjaði nýverið í alvöru skóla. Það er sami skóli og Örn og Olga eru í og heitir hann Högstorps Skola og er í Växjö.


Skólaslit (0)

090.JPGÍ júní var síðasti skóladagurinn hjá Erni í 5. bekk og Olgu í 2. Bekk í Högstorps Skola. Það er siður hér að þá safnast allir saman, nemendur, kennarar og annað starfsfólk skólans í skólagarðinum ásamt foreldrum og syngja saman.


Albert búinn međ leikskólann (0)

080.JPGJæja, tíminn líður. Í júní var síðasti leikskóladgur Alberts þannig að maður hafði það af fyrir fimmtugsafmælið að hafa ekki krakka lengur á leikskóla. Það er nú sagt frekar í gríni en alvöru þar sem Albert hefur liðið mjög vel á þessum leikskóla.


Miđsumar (0)

163.JPGMidsommar sem við köllum Jónsmessuna heima var um daginn. Þá koma Svíarnir saman og dansa í kringum miðsumarstöngina og borða síðan síld og kartöflur og láta sér líða vel.


Götuhlaup í Växjö (0)

3.JPGVäxjö Loppet heitir götuhlaup sem frjálsíþróttafélagið í Växjö sér um árlega.


Voriđ er ađ koma (0)

1.JPGÞessar tvær myndir sendi Anna mér til Bandaríkjanna frá ströndinni í Hörvik þar sem sumarhúsið er á austurströnd Svíþjóðar.


Krakkarnir ćfa stöng (0)

026.JPGÖrn er kominn með stangarstökk á heilann núna og búinn að stökkva 180m. Hann fór á æfingu um daginn og tók þau litlu með.


Albert á lokaćfingu (0)

025.JPGAlbert litli sem varð 6 ára í janúar tók sína lokaæfingu í “Gympa” sem við getum þýtt sem leikfimi í síðustu viku. Það var síðasta æfingin með félögunum og aðstoðarþjálfaranum Erni fyrir sumarfríið.


Páskar (0)

007.JPGUm daginn voru páskarnir hér eins og annarsstaðar í heiminum. Olga og Albert fóru þá og bönkuðu upp hjá nágrönnunum og báðu einfaldlega um nammi með vinum sínum.


Krakkarnir međ Ragnheiđi (0)

111Þegar ég fór um daginn til S-Afríku í þrjár vikur í æfingabúðir að þá kom Ragnheiður systir og hjálpaði Önnu með krakkana á meðan.


Gott nýtt ár (0)

Vesteinn familyVið óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegs árs með kærri þökk fyrir liðið ár.


Olga keppir í fimleikum (2)

1Rétt fyrir jólin keppti Olga á ný í fimleikum og stóð sig af vanda vel. Hér koma nokkrar myndir sem sýna hvað Olga var dugleg.


Örn 11 ára (0)

1Örn átti afmæli 15. nóvember s.l. og varð 11 ára. Hann bauð 7 strákum í veislu auk þess sem Olga og hennar vinkona Hanna og Albert og hans vinur Oskar voru með.


Ragnheiđur föndrar međ krökkunum (0)

1Í sambandi við afmælisdag Olgu um daginn kom Ragnheiður systir mín og guðmóðir Olgu í heimsókn til okkar. Þetta var í fyrsta skiptið sem hún kemur hér til Växjö síðan við fluttum.


Olga 8 ára 25. október (0)

1Olga átti afmæli um daginn og hélt heljarinnar veislu heima og bauð öllum bekknum sínum 2 B í Högstorp skólanum í Växjö.


Sigur hjá strákunum í Växjö (1)

1Örn og strákarnir í 11 ára flokki í IFK Växjö, unnu DM í síðustu viku. Það þýðir svona ef maður samlíkir þessu við Ísland að þá urðu þeir svæðismeistarar eða Bikarmeistarar svæðisins í sínum flokki. Hér koma nokkrar myndir. 


Krakkarnir á fimleikamóti (1)

1Örn og Olga kepptu á fimleikamóti í gær í Grimslöv 30km frá Växjö. Við Anna og Albert horfðum á og gekk allt mjög vel. Hér koma myndir frá mótinu. 

 

 

.


Örn sigrar í hástökki (1)

1
Fyrr í sumar þá bætti Örninn sig vel í hástökki á skólamóti í Växjö, 1.30m stökk kappinn, hér kemur stökkið á filmu við mikinn fögnuð hans sjálfs og bekkjarfélaganna.

 


Örn keppir og afi horfir á (1)

1Ör keppti um daginn í annað skiptið í kringlukasti á móti. Hann kastaði 29.64m í 11 ára flokki stráka og sigraði með yfirburðum með litlu 600gr kringlunni. 


Ingibjörg og Birgitta í Berlín (0)

1Það var ótrúlegt að hitta Ingibjörgu Ívarsdóttur og Birgittu Guðjónsdóttur á HM í Berlín. Birgittu rekst að vísu á inn á milli á Akureyri en í sjálfu sér ekki mjög oft. En það eru liðin ansi mörg ár síðan ég sá Ingibjörgu. 


Allir međ í Berlín (0)

1Anna og krakkarnir komu með á HM í Berlín um daginn. Það er í annað skiptið sem þau eru öll með, hitt skiptið var árið 2006 á EM í Gautaborg.

 


Fjórir góđir á Landsmóti (0)

1Eggert Boga, Siggi Einars og Einar Vill í brekkunni á Landsmótinu á Akureyri í sumar. Það var gaman að hitta strákana og rifja upp gamlar endurminningar. Við kepptum allir á sama tíma og Eggert kastaði lengst 63.08m í kringlunni, Siggi 84.94m og Einar 86.80m í spjótinu sem er enn Íslandsmet. 


Útileikhús (0)

1Við fórum fjölskyldan í útileikhús skammt frá Växjö í sumar og horfðum á Robin Hood. Það var virkileg agaman og í lok sýningarinnar fengum við nokkrar myndir af helstu leikurunum með Erni og Olgu. Albert var feimin g vildi ekki vera með á myndunum. 


Heimsmeistaramótiđ í Berlín 32. Stórmótiđ (1)

Gerd and VesteinnÆvintýrið byrjaði á HM í Helsinki árið 1983. Það eru 26 ár síðan gott fólk. Ég tók það saman í dag að ég er að fara á mitt 32. Stórmót. Þar á ég við Ólympíuleika, Heimsmeistaramót inni og úti og svo Evrópumeistaramót inni og úti.


Gaman á Landsmóti UMFÍ á Akureyri (1)

1

 

Ég tók mig til um daginn og flaug í boði Landsmótsnefndar UMFÍ beint til Akureyrar frá Kaupmannahöfn og tók krakkana mína með mér.  Við bjuggum í góðu yfirlæti sem ávallt hjá Aðalbjörgu systir og hennar manni Óla og dóttur þeirra Þóru.


Pétur kom í heimsókn til Växjö (0)

icelandic4Gamall félagi og vinur kom í heimsókn með efnilega unglinga frá ÍR um daginn.  


Örn og Olga kepptu í Kalmar (0)

icelandic 1Örn og Olga fóru með mömmu sinni gær og Alberti litla til Kalmar og kepptu á frjálsíþróttamóti. Þau stóðu sig vel og náðu í smanlagt fjóra verðlaunapeninga og einn bikar.


Gleđilega Hátíđ (0)

Iceland flagGleðilega hátíð á þjóðhátíðardaginn 17. Júní 2009 

  

'


Kristín Birna Ólafsdóttir í heimsókn (0)

Vesteinn_1Í dag kom Kristín Birna Ólafsdóttir fjölþrautarkona frá Íslandi í heimsókn hér inn á æfingasvæðið í Chula Vista.

 


ÖRN BĆTIR SIG (1)

picÖrn keppti í gær á barnamóti í Växjö í 11 ára flokki stráka.  


FRÉTTIR AF FJÖLSKYLDUNNI (0)

Vesteinni lapsedJæja, allir vinir og kunningjar á ‚Íslandi. Ég er að myndast við það að koma síðunni aftur í gagnið. Ástæðan fyrir endurksipulagningunni á henni eru margar en fysrt og fremst jákvæðar. Það hefur nefnilega gengið mjög vel síðastliðin ár og allt vaxið á öllum sviðum hjá okkur og maður verður nú bara að vera jákvæður í sambandi við það á þessum kreppu tímum.


NÝ HEIMASÍĐA (0)

Nýjan heimasíðan mín átti ekki að fara í loftið fyrr en þann 1. Janúar n.k. en út af fyrirlestri á sem ég held á morgun fimmtudag á Selfossi hef ég ákveðið að opna hana núna þrátt fyrir að hún sé ekki alveg tilbúin. Bið ég fólk að hafa biðlund með mér í því að skilja að formlega verður síðan opnuð þann 1. Janúar 2009.  


Powered by AutomatWeb™ - Culture in DatabaseE-Lifewit.jpg.jpg

All rights reserved